Færsluflokkur: Bloggar

Leiðrétting

Miðað við land(a)fræðina í kringum Höfn og kortið sem fylgir fréttinni er augljóst að ekki er um Jökulsárlón að ræða, heldur Jökulsá í Lóni. 

Takk fyrir vandaða fréttamennsku og að fara "alltaf" rétt með staðreyndir, mbl.is.


mbl.is Festu jeppa á vaði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um stærðfræði

Síðast þegar ég gáði var 363 deilt með 60: 6,05.  Það er vissulega rúmlega 5, en talsvert nær því að vera rúmlega 6.  Það væri því réttara að segja að sófakartöflurnar horfðu að meðaltali í rúma 6 klukkustundir á sjónvarpið á dag.

"Sófakartöflur" er hins vegar stórskemmtilegt orð.


mbl.is Sófakartöflum fjölgar í Serbíu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er hann gamall?

Í þessari fyrstu færslu minni ætla ég einfaldlega að benda mbl.is mönnum og konum á það hversu einkennilegt það sé að maður yngist um heil þrjú ár milli fyrirsagnar og texta fréttarinnar.  Að öllum gamni slepptu er það vissulega rétt að hann er 86 ára, en ekki 89 ára eins og stendur í fyrirsögninni.  Það stendur meira að segja neðst í fréttinni að hann verði 89 ára árið 2013.

 

Fyrir utan þetta allt saman átti ég vissulega á dauða mínum von en ekki að fyrsta færslan á þessari síðu myndi fjalla um Robert Mugabe!

 

Það er gaman að segja frá því að búið er að leiðrétta fyrirsögnina, hvort það er vegna ábendingar minnar skal ósagt látið.

 


mbl.is Mugabe fagnar 86 ára afmæli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Um bloggið

Sigurður Óskar Jónsson

Höfundur

Sigurður Óskar Jónsson
Sigurður Óskar Jónsson
Þessi síða er stofnuð með það að markmiði að geta skrifað athugasemdir á öðrum síðum undir nafni á fljótlegan og einfaldan hátt.  Ef þú hefur eitthvað að athuga við skrif mín geturðu skrifað það í gestabókina, a.m.k. þangað til ég nenni að skrifa eitthvað sjálfur á þessa síðu.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband